Erlent

Ár þorna upp víða um heim

Ár eru að þorna upp í öllum heimsálfum, sem er ávísun á alvarlegan vatnsskort á heimsvísu, samkvæmt nýrri skýrslu náttúruverndarsamtakanna The World Wide Fund for Nature. Skýrslan er kynnt í tilefni af alþjóðlegum degi vatnsins sem er í dag.

Í skýrslunni kemur fram að nokkrar af stærstu og þekktustu ám heimsins gætu þornað upp á næstu áratugum vegna þátta á borð við mengun, stíflur og loftslagsbreytingar. Það myndi valda útrýmingu fjölda ferskvatnstegunda auk þess að leiða til alvarlegs vatnsskorts.

Samtökin segja að stjórnvöld þurfi að grípa til róttækra aðgerða til að varðveita ár, vötn og votlendi sem veiti milljónum manns drykkjarvatn, mat og áveituvatn til landbúnaðar.

Aðgerðarleysi stjórnvalda hingað til hefur leitt til þess að af um 10.000 tegundum ferskvatnslífvera sem til eru í heiminum hefur fimmtungi verið útrýmt eða er í útrýmingarhættu, að því er kemur fram í skýrslunni. „Þetta hættu­ástand í ferskvatnsmálum endurspeglar hvernig óskert uppbygging er að stofna í hættu hæfileika náttúrunnar til að mæta auknum kröfum okkar,“ sagði Jamie Pittock, sem stýrir ferskvatnsáætlun samtakanna.

Í skýrslunni er ástand tíu helstu áa heimsins metið en það eru Dóná í Evrópu, Ríó Grande í Norður-Ameríku, La Plata í Suður-Ameríku, Yangtzefljót, Mekongfljót, Salween, Indusfljót og Gangesfljót í Asíu, Níl í Afríku og Murray-Darling í Ástralíu.

Í henni kemur meðal annars fram að um 80 prósent af votlendi við bakka Dónár hefur tapast sökum of margra stíflna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×