Erlent

Finna þarf lausn án tafar á þessu ári

Abdullah fjallaði í ræðu sinni á Bandaríkjaþingi nánast eingöngu um deilur Ísraela og Palestínumanna. Á bak við hann sitja þau Dick Cheney varaforseti og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar.
Abdullah fjallaði í ræðu sinni á Bandaríkjaþingi nánast eingöngu um deilur Ísraela og Palestínumanna. Á bak við hann sitja þau Dick Cheney varaforseti og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar. MYND/AP

Abdullah Jórdaníukonungur sagði enga von til þess að lausn finnist á deilu Ísraels og Palestínumanna nema Bandaríkin beiti sér af alefli í málinu.

Abdullah ávarpaði Bandaríkjaþing á fimmtudagskvöldið og hvatti þingmenn til að skapa þær aðstæður að hægt verði að koma á varanlegum friði í Mið-Austurlöndum.

„Við væntum þess að þið takið að ykkur sögulegt hlutverk,“ sagði hann á fundi sameinaðs þings í Washington, og bætti við að árangur verði að sjást „ekki eftir eitt ár eða fimm ár heldur á þessu ári.“

Ræðu sína flutti hann á lýtalausri ensku og þurfti nokkrum sinnum að gera hlé á máli sínu vegna lófataks áheyrenda.

Hann lagði áherslu á að bæði Ísraelar og Palestínumenn hafi gengið í gegnum miklar þjáningar, en minntist hvorki á innbyrðis deilur Palestínumanna né tilraunir Condoleezzu Rice til að koma friðarferlinu af stað á ný.

„Markmiðið hlýtur að vera friður sem allir hafa ávinning af,“ sagði hann.

Áður en hann hélt til Washington hafði Abdullah gagnrýnt Ísrael harðlega og sagði meginábyrgðina á ástandinu liggja hjá Ísrael. Í ræðunni forðaðist hann þó að beina spjótum sínum beint að Ísrael.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×