Erlent

Væri brot gegn lögum íslams

Börn að leik skammt frá Kabúl.
Börn að leik skammt frá Kabúl. MYND/AP

 Æðstaráð múslimaklerka í Afganistan hafnar kröfu þjóðþings landsins um að Afgönum, sem grunaðir eru um stríðsglæpi, verði veitt sakaruppgjöf. Ráðið segir að virða beri rétt fórnarlambanna og vísar þar í íslömsk lög.

Báðar deildir þjóðþingsins í Afganistan höfðu samþykkt ályktun um sakaruppgjöf stríðsmanna, sem börðust gegn hernámi Sovétríkjanna á níunda áratug síðustu aldar eða í borgarastríðinu sem geisaði í landinu á tíunda áratugnum. Sakaruppgjöfin myndi þó aðeins ná til þeirra sem viðurkenna núverandi stjórn landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×