Erlent

Stafrænt ofbeldi æ algengara

Ofbeldismenn nýta sér nútímatækni til þess að ofsækja fyrrverandi eiginkonur og kærustur.
Ofbeldismenn nýta sér nútímatækni til þess að ofsækja fyrrverandi eiginkonur og kærustur.

Nútímatækni á borð við sms-skeyti, tölvupóst og GPS-tæki eru meðal þeirra leiða sem ofbeldismenn nota í síauknum mæli til að elta uppi fyrrverandi eiginkonur, sambýliskonur eða kærustur. Í Danmörku eru kvennaathvörf komin í samstarf við lögreglu til að gera mönnunum erfiðara fyrir.

„Með nútímatækni hefur ofbeldismönnum opnast fleiri dyr til að ná stjórn á konunum,“ segir Anne Mau, formaður landssamtaka kvennaathvarfa.

Mennirnir koma njósnaforritum fyrir í tölvum kvennanna, stela farsímum, senda hótanir í gegnum sms og tölvupóst og sumir koma jafnvel GPS-staðsetningartæki fyrir í fórum fyrrverandi maka til að fylgjast með ferðum þeirra.

Danska lögreglan hefur nú útbúið lista með fimmtán atriðum sem ofsóttum konum er ráðlagt að fara eftir. Þar er þeim bent á að skipta um símanúmer og nota fyrirfram greidd símakort; notast aðeins við tölvupóstforrit sem hægt er að nálgast úr hvaða tölvu sem er, til dæmis Gmail eða Hotmail, tala ekki í síma þar sem greina má umhverfishljóð í kring og skrá nafn sitt hvergi á netinu þar sem slíkt má rekja með leitarvélum.

Starfsmenn athvarfanna segjast þó stundum forviða, því jafnvel þótt ráðleggingunum sé fylgt í þaula finni ofbeldismenn sér sífellt nýjar leiðir til að hrella konurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×