Kona rændi þriggja daga gömlu barni 12. mars 2007 05:15 Á eftirlitsmyndböndum má sjá konuna ganga út af sjúkrahúsinu með barnið í handtösku. MYND/AP
Fjögurra daga gamalt barn fannst snemma í gærmorgun heilt á húfi í heimahúsi í Nýju-Mexíkó, daginn eftir að því var rænt af fæðingardeild á sjúkrahúsi í Texas. Barninu, sem er drengur og hefur fengið nafnið Mychael Darthard-Dawodu, var rænt aðfaranótt laugardagsins á sjúkrahúsi í bænum Lubbock. Barnsræninginn var kona sem þóttist vera hjúkrunarfræðingur. Hún hafði komið nokkrum sinnum inn á sjúkrastofuna þar sem móðir drengsins lá ásamt drengnum og sagst þurfa að fara með drenginn vegna þess að gera þyrfti rannsóknir á honum. Á eftirlitsmyndavélum má sjá barnsræningjann ganga út úr sjúkrahúsinu, klædd í bláar sjúkrahúsbuxur og gráa dúnúlpu með hettu yfir höfðinu. Barnið virðist hafa verið í handtösku sem hún hélt á út í rauða bifreið sem ekið var burt. Litli drengurinn. Mychael Darthard-Dawodu heitir sá litli.MYND/AP Barnið þjáðist af gulu sem ekki er óalgengt hjá nýfæddum börnum og var strax flutt á sjúkrahús í Clovis, bænum þar sem það fannst. Tuttugu og eins árs gömul kona er í varðhaldi hjá lögreglunni í Clovis. Talið er að karlmaður hafi verið í vitorði með henni og hann hafi ekið rauðu bifreiðinni frá sjúkrahúsinu eftir að barninu var rænt. Mikil leit hafði verið gerð að barninu bæði í Texas og Nýju-Mexíkó, og höfðu lögreglunni borist fjölmargar vísbendingar frá fólki í báðum ríkjunum. Stjórnendur sjúkrahússins í Lubbock sögðu allt starfsfólk bera nafnspjöld, en ekki var vitað hvort barnsræninginn var með nafnspjald þegar ránið var framið. „Ég held að starfsfólkið hjá okkur hafi aldrei séð hana," sagði Gwen Stafford, einn af yfirmönnum sjúkrahússins. Konan gekk út af sjúkrahúsinu með barnið klukkan 1.20 aðfaranótt laugardags. Innan fimmtán mínútna var móðirin búin að láta vita að barnið væri horfið. Þetta er í annað skiptið á innan við ári sem barni er rænt frá sjúkrahúsi í Lubbock. Í júní á síðasta ári var fjögurra daga gömlu stúlkubarni rænt frá móður sinni á öðru sjúkrahúsi. Barnsræninginn þá var einnig kona, en hún hafði komið í heimsókn til móðurinnar. Lögreglunni bárust fljótlega ábendingar sem leiddu til þess að ræninginn náðist daginn eftir og var barnið heilt á húfi.
Mest lesið „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Fleiri fréttir „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Sjá meira