Erlent

Vald Bandaríkjanna ofmetið

Máttur Bandaríkjanna til þess að leysa deilumál Ísraela og Palestínumanna er oft stórlega ofmetinn, bæði af Bandaríkjamönnum sjálfum og einnig í Evrópuríkjum.

Þetta er mat ísraelska fræðimannsins Mark Heller, sem á föstudag flutti fyrirlestur á vegum Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands um þá valkosti sem Ísraelar standa nú frammi fyrir gagnvart Palestínumönnum.

„Bandaríkin eru ekki almáttug, þótt auðvitað mættu þau reyna meira," sagði Heller, sem er yfirmaður rannsókna við Öryggismálastofnun Tel Aviv-háskóla.

Í fyrirlestri sínum sagði hann stöðuna nú vera þannig að nánast öll sund væru lokuð þeim sem vildu koma raunverulegu friðarferli af stað á ný milli Palestínumanna og Ísraela. Þess í stað eru Palestínumenn og Ísraelar að byrja að feta annað ferli pólitískra samskipta, sem gætu bætt lífsskilyrði bæði Palestínumanna og Ísraela og síðar meir jafnvel breytt andrúmsloftinu þannig að hugsanlega verði hægt að reyna eiginlegar friðarviðræður á ný.

„En þetta er alveg á frumstigi," sagði Heller í viðtali við Fréttablaðið. „Og allt er það komið undir því að Palestínumenn myndi nýja þjóðstjórn og hún fari að viðmiðunarreglum fjórveldanna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×