Erlent

Eftirlaunaaldur hækki í 67 ár

Eftirlaunaaldur í Þýskalandi verður hækkaður upp í 67 ár samkvæmt frumvarpi ríkisstjórnarinnar sem neðri deild þýska þingsins samþykkti með miklum meirihluta á föstudag.

Þessari lagabreytingu er ætlað að draga úr kostnaði þýskra stjórnvalda við að sjá fyrir öldruðum Þjóðverjum sem fer sífjölgandi. Gert er ráð fyrir að hækkunin taki gildi smám saman á tímabilinu 2012 til 2024.

Fastlega er búist við því að efri deildin samþykki frumvarpið síðar í þessum mánuði. Ríkisstjórnarflokkarnir tveir eru með mikinn meirihluta í báðum þingdeildum. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×