Erlent

Myndi heimastjórn fyrir 26. mars

Leiðtogi stærsta flokks mótmælenda á Norður-Írlandi fagnar eftir að úrslit eru kunn.
Leiðtogi stærsta flokks mótmælenda á Norður-Írlandi fagnar eftir að úrslit eru kunn. MYND/AP

Stjórnmálaflokkar andstæðra fylkinga mótmælenda og kaþólikka á Norður-Írlandi, Lýðræðissinnaðir sambandssinnar (DU) og Sinn Féin, komu sterkastir út úr þingkosningunum sem fram fóru á miðvikudag.

Stjórnvöld á Bretlandi og Írlandi hafa gefið leiðtogum flokkanna frest til 26. mars til að mynda nýja heimastjórn og náist það ekki fyrir þann tíma verði þingið leyst upp. Segja þau DU, sem vann flest þingsæti, ekki hafa neina afsökun fyrir að vilja ekki starfa með Sinn Féin eftir að Írski lýðveldisherinn (IRA) lét af ofbeldi. Ef DU neitar að starfa með Sinn Féin er því hótað að stjórn yfir Norður-Írlandi muni færast í meira mæli til írskra stjórnvalda.

Leiðtogi DU, Ian Paisley, heldur því hins vegar fram að Sinn Féin hylmi enn þá yfir glæpi IRA og annarra hópa sem berjast gegn breskum yfirráðum á Norður-Írlandi.

DU fékk 30,1 prósent atkvæða og 36 þingmenn. Sinn Féin fékk 26,2 prósent atkvæða og 28 þingmenn. Alls eru 108 sæti á þinginu.

Í krafti flestra þingsæta getur Paisley gert tilkall til þess að verða oddviti heimastjórnarinnar og aðalsamningamaður Sinn Féin, Martin McGuinness, yrði að öllum líkindum næstráðandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×