Vefsíða kaupir fótboltafélag Elvar Geir Magnússon skrifar 13. nóvember 2007 16:45 Heimavöllur Ebbsfleet.
Vefsíðan MyFootballClub.co.uk hefur tilkynnt um kaup á enska utandeildarliðinu Ebbsfleet United. Þar með hefur verið brotið blað í fótboltaheiminum en í gegnum þessa síðu hefur almenningi verið gefinn kostur á að kaupa hlut í fótboltaliði. Tuttugu þúsund manns hafa skráð sig á síðunni og hver og einn borgað 35 pund til að taka þátt í yfirtöku á fótboltaliði. Aðstandendur síðunnar ákváðu síðan að það félag yrði Ebbsfleet. Allir þeir sem skráðu sig munu eiga jafnan hlut í félaginu. Í gegnum vefsíðuna munu síðan þessir tuttugu þúsund eigendur kjósa í lýðræðislegri kosningu um leikskipulag, kaup og sölu á leikmönnum og allar aðrar ákvarðanir sem þarf að taka í rekstri á fótboltafélagi. „Við lítum á þetta sem stórt tækifæri," sagði Jason Botley, stjórnarformaður Ebbsfleet. „Sá peningur sem við fáum nú aukalega mun hjálpa til að koma félaginu hærra upp." Gengið verður frá samningum á næstu dögum og mun MyFootballClub.co.uk eignast 51% hlut í félaginu með möguleika á að stækka þann hlut enn frekar í framtíðinni. Eftir yfirtökuna mun sama stjórn verða við lýði hjá félaginu. Liam Daish var knattspyrnustjóri félagsins en allar ákvarðanir færast nú í hendur notenda MyFootballClub.co.uk. Daish mun þó halda áfram að starfa fyrir félagið en hans starfstitill verður nú yfirþjálfari. „Þetta er ekki stór breyting fyrir mig. Það sem fram fer á æfingasvæðinu og í búningsklefanum verður enn í mínum höndum. Stuðningsmennirnir munu borga mín laun og fjármagna félagið. Það er því bara jákvætt að þeir fái að ráða hverjir spila leikina," sagði Daish. Ebbsfleet er í níunda sæti í utandeildinni, sex stigum frá umspilssæti fyrir því að komast í ensku deildarkeppnina. „Það er mikil áskorun fyrir mig að taka þátt í því að búa til sigursælt lið með aðstoð frá tuttugu þúsund manns," sagði Daish.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira