Erlent

Kýpur-Grikkir fella aðskilnaðarmúrinn

Danskur ferðamaður beygir sig eftir mola úr múrnum.
Danskur ferðamaður beygir sig eftir mola úr múrnum.

Kýpur-Grikkir hafa rifið niður hluta af fjögurra metra háum múrvegg sem undanfarna áratugi hefur skipt höfuðborginni Nikosíu í tvo hluta.

Tugir manna fylgdust með seint á fimmtudagskvöld þegar tveimur jarðýtum var beitt á múrinn í Ledra-götu, sem hefur verið lokuð frá því á sjöunda áratug síðustu aldar. Að niðurrifinu loknu settu grísku hermennirnir upp létta girðingu sem auðvelt er að fjarlægja.

„Þetta er fyrsta skrefið og sýnir velvilja af okkar hálfu,“ sagði Christ­odoulos Pashiardis, talsmaður stjórnar Kýpur-Grikkja.

Tassos Papadopoulos forseti segir ákvörðun um þetta hafa verið tekna fyrir tveimur vikum þótt engin tilkynning hafi verið gefin um það fyrr en niðurrif múrsins hófst.

„Ég tel að þeir hafi tekið þessa ákvörðun eftir að hafa verið beittir þrýstingi. Þetta er jákvætt skref,“ sagði Rasit Pertev, starfsmaður á skrifstofu forseta Kýpur-Tyrkja. Hann sagði niðurrif múrsins „sögulegan viðburð“ sem kom tyrkneskum ráðamönnum á Kýpur algerlega í opna skjöldu.

Utanríkisráðherra Kýpur-Grikkja, Giorgos Lillikas, hvatti síðan stjórnvöld í Tyrklandi til þess að bregðast við þessum tíðindum með því að draga herlið sitt burt frá tyrkneska svæðinu á norðurhluta eyjunnar „svo hægt verði að opna landamærahlið fyrir borgarana.“

Þegar Evrópusambandið veitti gríska hlutanum aðild árið 2004 strönduðu viðræður um sameiningu eyjunnar, en Tyrkland er eina ríkið sem viðurkennir sjálfstæði tyrkneska hlutans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×