Erlent

Fær að fylgjast með tölvupósti

Mikael Odenberg varnarmálaráðherra Svíþjóðar.
Mikael Odenberg varnarmálaráðherra Svíþjóðar.

Sænska stjórnin hyggst veita leyniþjónustu landsins heimild til að fylgjast með tölvupóstsamskiptum og símtölum bæði innanlands og til útlanda án þess að þurfa að leita dómsúrskurðar í hvert sinn.

Víða í ríkjum Evrópu hafa heimildir leyniþjónustustofnana til að fylgjast með símtölum og tölvupósti verið rýmkaðar í því skyni að torvelda hryðjuverkamönnum starfsemi sína.

Þessar heimildir, sem sænska stjórnin kynnti, ganga þó lengra en áður hefur þekkst og hafa vakið áhyggjur mannréttindasamtaka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×