Erlent

Heimta nýtt ungdómshús

Hópur ungmenna sem áður hélt til í Ungdómshúsinu á Norðurbrú krefst þess að yfirvöld láti þeim í té nýtt hús.

Hópurinn, sem kallar sig Ungdómshús núna! ætlar að halda til á götum borgarinnar þangað til af því verður að því er talskona hópsins, Sune Andersen, tjáði fréttavef Nyhedsavisen. „Við erum þvinguð á götuna gegn okkar vilja. Þetta er val stjórnmálamannanna að við höfum ekki lengur samkomustað. [...] Því sjáum við enga aðra leið en að halda til á götunni.“

Yfir þúsund manns mættu á götuhátíð sem hópurinn bauð til í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×