Erlent

Árás hraðar kjarnavopnavæðingu Írans

Íranar söfnuðust saman á fjöldafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í gær til stuðnings kjarnorkuáætlun stjórnvalda.
Íranar söfnuðust saman á fjöldafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í gær til stuðnings kjarnorkuáætlun stjórnvalda. MYND/AP

Hernaðaraðgerðir gegn Íran gætu haft þveröfug áhrif og aukið til muna líkur á að Íranir komi sér upp kjarnavopnum, jafnvel innan tveggja ára. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu frá virtum kjarnavopnasérfræðingi, Frank Barnaby, sem telur líklegt að árás á Íran gæti skapað einingu hjá írönsku þjóðinni og aukinn stuðning almennings við kjarnavopnaeign landsins. BBC greindi frá niðurstöðum skýrslunnar á fréttavef sínum.

Í skýrslunni segir Barnaby að takmarkaðar upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írans þýði að jafnvel mörg hundruð árása myndi ekki ná að fullu að eyðileggja kjarnorkuáætlunina. Í kjölfar slíkra árása yrði síðan mun auðveldara fyrir Íran að segja sig frá samningnum gegn útbreiðslu kjarnavopna (NPT) og hefja af krafti vinnu við smíði kjarnavopna, hugsanlega með svartamarkaðsviðskiptum. Og við slíkar aðstæður gæti Íran komið sér upp kjarnavopnum innan tveggja ára sem er skemmri tími en gögn bendi til að Íran væri fært um í dag.

Írönsk stjórnvöld hafa staðfastlega neitað því að til standi að þróa kjarnavopn heldur verði kjarnorkan einungis notuð í friðsamlegum tilgangi. Yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA), Mohamed ElBaradei, sagði í gær að þrátt fyrir fjögurra ára rannsóknir gæti stofnunin ekki staðfest að kjarnorkuáætlun Írana sé í friðsamlegum tilgangi eins og þeir haldi fram og að efasemdir muni áfram vera til staðar þangað til stjórnvöld í Íran fallist á að vinna með stofnuninni.

Bandaríkin hafa íhugað hernaðaraðgerðir gegn ríkjum vegna kjarnorkuvæðingar áður en ekki er neitt beint fordæmi í sögunni fyrir að slíkt hafi verið gert. Næst hefur það legið við árið 1994 þegar rætt var á fundi í Hvíta húsinu hvort gera ætti árás á Norður-Kóreu en umræðu um það var hætt eftir að fréttir bárust af því að vilji væri hjá þarlendum stjórnvöldum til að semja um kjarnorkuáætlun sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×