Erlent

Chavez hótar þjóðnýtingu

Hugo Chavez sveiflar þjóðnýtingar-sleggjunni.
Hugo Chavez sveiflar þjóðnýtingar-sleggjunni. MYND/AP

Hugo Chavez, forseti Venesúela, sakar stjórmarkaði og matvælabirgja í landinu um að hamstra matvæli og þrýsta upp verði. Hefur hann hótað að þjóðnýta öll slík fyrirtæki í einkaeigu um leið og þau gefi honum tilefni til þess.

„Ef þau halda áfram að vinna gegn hagsmunum fólksins, stjórnarskránni og lögunum, þá mun ég taka matvælageymslur, kjörbúðir, stórmarkaði og þjóðnýta. Þannig að verið þið undirbúin,“ sagði Chavez í sjónvarpsávarpi.

Margir stórmarkaðir hafa hætt sölu á kjöti, mjólk og sykri undanfarið eftir að einni keðju var lokað tímabundið fyrir að verðleggja kjöt hærra en viðmiðið sem stjórnvöld hafa gefið út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×