Erlent

Hefja tvíhliða viðræður á ný

Fulltrúar ríkisstjórna Kóreuríkjanna tveggja hafa komið sér saman um að hefja á ný beinar tvíhliða samningaviðræður á ráðherrastigi síðar í mánuðinum. Ákvörðunin er fyrsta áþreifanlega merkið um slökun á spennunni í samskiptum Suður- og Norður-Kóreu, en sú spenna náði nýju hámarki er N-Kóreumenn sprengdu fyrstu tilraunakjarnorkusprengju sína í fyrra.

Forsenda fyrir þessari nýju lotu tvíhliða viðræðna er samkomulagið sem náðist í sexvelda-viðræðunum svonefndu í síðustu viku, þar sem N-Kóreumenn samþykktu að falla frá kjarnorkuvígbúnaðaráætlun sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×