Erlent

Launavinna borgar sig ekki

Þessir Danir vinna vinnuna sína.
Þessir Danir vinna vinnuna sína. MYND/AP

Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, segir í nýrri skýrslu að það borgi sig ekki að stunda launavinnu í Danmörku. Danska dagblaðið Politiken skýrir frá þessu á fréttavef sínum.

Í skýrslunni eru danskir ráðamenn gagnrýndir harkalega. Í skýrslunni er sagt nauðsynlegt að gera breytingar á skattkerfinu, menntakerfinu og lífeyriskerfinu. Að öðrum kosti sé vart hægt að búast við miklum hagvexti í náinni framtíð.

Meðal annars leggur stofnunin það til að eignaskattur verði hækkaður svo lækka megi tekjuskatt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×