Erlent

Sagður vera farinn til Írans

Einn af ráðgjöfum forsætisráðherra Íraks sagði í gær að Muktada al-Sadr, herskár leiðtogi sjía í Bagdad, væri í Íran, en vísaði því á bug að hann væri á flótta til að forðast handtöku.

Sami al-Askari sagði al-Sadr hafa haldið yfir landamærin „fyrir nokkrum dögum" en gaf ekkert nánar upp um ferðir hans. Al-Sadr á skyldmenni í Teheran. „Ég staðfesti að Muktada al-Sadr sé í heimsókn í Íran. En ég vísa því á bug að heimsókn hans sé flótti," sagði al-Askari.

Talsmenn Bandaríkjahers fullyrtu á miðvikudag að al-Sadr væri í Íran, en stuðningsmenn hans sögðu það ekki rétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×