Sífellt fleiri handteknir 12. febrúar 2007 04:45
Í síðasta mánuði réðst breska lögreglan inn í nokkur hús í Birmingham og handtók þar níu manns vegna gruns um að þeir tengdust hryðjuverkaáformum. Á föstudaginn voru fimm hinna handteknu ákærðir, einn þeirra fyrir að hafa áformað að ræna og drepa breskan hermann. Tveir þeirra voru hins vegar látnir lausir í síðustu viku og annar þeirra, Abu Bakr, sagði múslima upplifa Bretland sem „lögregluríki“. Eftir hryðjuverkin í þremur neðanjarðarlestum og einum strætisvagni í London sumarið 2005 hefur handtökum breskra múslima fjölgað gífurlega, en stór hluti hinna handteknu hefur síðar verið látinn laus án þess að neinar ákærur hafi verið gefnar út. Veruleg reiði hefur magnast meðal múslima í Bretlandi vegna þessa. Múslimum finnst að sér vegið með ómaklegum hætti og fá það á tilfinninguna að þeir séu óvelkomnir í landinu, jafnvel þeir sem eru þar fæddir og aldir upp. Tayib Rauf var handtekinn í Birmingham um miðja nótt í ágúst síðastliðnum vegna gruns um aðild að áformum um að sprengja upp farþegaflugvélar á leið yfir Atlantshafið. Fyrstu þrjá dagana í fangelsinu fóru engar yfirheyrslur fram. „Síðan byrjuðu þeir að spyrja mig fjölmargra heimskulegra spurninga: „Hvað gerirðu? Hverja umgengstu? Vandræðalegasta spurningin var þegar þeir spurðu mig hvers konar múslimi ég væri. Hvernig svarar maður því?“ Hann segir minningarnar hafa hellst yfir sig þegar mennirnir níu voru handteknir á svipuðum slóðum nú fyrir skemmstu. Rauf, sem er 22 ára, var sleppt eftir tvær vikur í haldi, en hann hefur ekki enn komist að því hvers vegna hann var handtekinn. Hann segist þó gruna að það sé vegna þess að bróðir hans, Rashid, sem býr í Pakistan, sé grunaður um að hafa skipulagt árásirnar auk þess sem annar maður í London, sem einnig var leystur úr haldi án ákæru, hafi einu sinni unnið hjá fjölskyldu-fyrirtæki Raufs. „Þetta er eins og keðja,“ sagði Rauf. „Maður er handtekinn vegna þess hverja maður umgengst.“
Mest lesið Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Innlent Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Innlent Fleiri fréttir Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Sjá meira