Erlent

Þyrlur voru skotnar niður

William Caldwell sagði skothríð af jörðu niðri hafa grandað þyrlunum.
William Caldwell sagði skothríð af jörðu niðri hafa grandað þyrlunum. MYND/AP

Allar þær fjórar bandarísku þyrlur sem hrapað hafa í Írak á undanförnum hálfum mánuði voru skotnar niður. Þetta upplýsti talsmaður Bandaríkjahers í gær. Þetta var í fyrsta sinn sem herinn staðfesti að þyrlurnar – þrjár frá hernum og ein í einkaeigu – hefðu að öllum líkindum verið skotnar niður en ekki hrapað af öðrum orsökum.

Átta manns fórust í tveimur bílsprengjutilræðum í Bagdad í gær, daginn eftir blóðugustu slíku árásina sem gerð hefur verið frá því innrásin hófst. 137 manns fórust í því tilræði á útimarkaði í hverfi sjía á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×