300 Bretar vilja geislarannsókn eftir dauða njósnara 26. nóvember 2006 13:15 Alexander Litvinenko MYND/AP
300 manns hafa leitað til heilbrigðisyfirvalda í Bretlandi eftir að í ljós kom að eitrað var fyrir rússneska njósnaranum Litvinenko með geislavirku póloníumi í byrjun mánaðarins. Fólkið verður sett í rannsókn öryggisins vegna en ólíklegt er talið að geislavirkni sem fundist hefur á sushi-veitingastaðnum þar sem hann át, hafi haft áhrif á aðra í umhverfinu. Auk veitingastaðarins þar sem talið er að eitrað hafi verið fyrir Litvinenko, fundust leifar af geislavirkni á hóteli þar sem hann kom daginn sem eitrað var fyrir honum og á heimili hans í Norður-London. Lögregla segir þetta í fyrsta skipti sem vitað sé til að póloníum hafi verið notað til að eitra fyrir manni, í það minnsta í Bretlandi. Lögregluyfirvöld vilja nú umfram allt komast að því hvernig efninu var smyglað til landsins eða hvernig það komst í hendur illvirkja í landinu. Póloníum er sjaldgæft frumefni sem yfirleitt verður til í kjarnakljúfum. Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi segja hins vegar að ógnvænleg eitrunaráhrifin sem drógu Litvinenko til dauða séu afar ósennileg nema þegar efnið hafi borist inn í meltingarveg, öndunarveg eða borist inn í blóðrásina í gegnum sár.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Sjá meira