Erlent

Tugþúsundir í líkfylgd í Beirút

Tugþúsundir eru samankomnir í Beirút í Líbanon, til að fylgja Pierre Gemayel fyrrverandi ráðherra til grafar, en hann var myrtur í fyrradag. Stuðningsmenn hafa hvatt almenning til að fjölmenna við jarðarförina, sem hefst klukkan 11 að íslenskum tíma.

Gemayel var fimmti líbanski stjórnmálamaðurinn andvígur Sýrlandsstjórn, sem er myrtur á tveimur árum. Þeirra nafntogaðastur var Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra sem lést í gríðarlegri sprengjuárás á bílalest hans fyrir rúmlega einu og hálfu ári.

Stjórnarkreppan í Líbanon, sem hófst með uppsögnum 6 ráðherra úr ríkisstjórninni, hefur hríðversnað eftir morðið á Gemayel. Stjórnmálafræðingar segja að ef tveir ráðherrar til viðbótar segja sig úr embætti eða látast fyrir morðingja hendi, þá sé ríkisstjórn Líbanons óvéfengjanlega óstarfhæf. Fulltrúar Hisbollah og aðrir stuðningsmenn Sýrlands segja að stjórnin sé nú þegar óstarfhæf, vegna þess allir fulltrúar sjíamúslima hafi sagt sig úr henni og því sé hún ekki rétt samsett, samkvæmt stjórnarskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×