Hamas ekkert annað en hryðjuverkasamtök 7. mars 2006 17:41
Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, segir árásir verða gerðar á forystumenn Hamas-samtakanna ef samtökin hefja árásir á Ísrael á ný. Hann segir Hamas ekkert annað en hryðjuverkasamtök. Olmert segir þá stefnu Ísraelsmanna að ráða af dögum palestínska áhrifamenn hafa borið árangur og verði haldið áfram. Enginn þeirra myndi njóta friðhelgi, ekki einu sinni Ismail Haniyeh, forsætisráðherraefni Hamas-samtakanna. Samtökunum er kennt um 60 sjálfsvígsárásir í Ísrael síðan uppreisn Palestínumanna hófst árið 2000. Ísraelsmenn hafa ráðið af dögum nokkra af forystumönnum Hamas á undanförnum árum þar á meðal Ahmed Yassin einum af stofnendum Hamas. Þá lýsti Olmert því yfir í dag að Kadima-flokkur hans og Sharons, forsætisráðherra, ætli að draga stórlega úr styrkjum til landtökumanna Gyðinga á Vesturbakkanum. Hann sagði að peningunum yrði frekar varið til uppbyggingar annarsstaðar í Ísrael á næstu árum. Áhersla yrði lögð á Jerúsalem, Negev-eyðimörkina og Galíleu í Norður-Ísrael. Búast má við að yfirlýsing Olmerts í dag hleypi öllu í bál og brand nú þegar aðeins þrjár vikur eru til kosninga í landinu. Margir kjósendur hafa ekki fyrirgefið ríkisstjórninni fyrir að fyrirskipa brottflutning landtökumanna frá Gasaströndinni og hluta Vesturbakkans í fyrra. Kadima flokkur Sharons forsætisráðherra og Olmerts mælist nú með mest fylgi í könnunum nú, en óvíst hvaða áhrif yfirlýsingin í dag hafi á mælingar næstu daga.
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira