Erlent

Bush vill loka Guantanamo

Wolfgang Schuessel, kanslari Austurríkis (t.h.) og George W. Bush Bandaríkjaforseti við komuna til Vínar í gærkvöldi.
Wolfgang Schuessel, kanslari Austurríkis (t.h.) og George W. Bush Bandaríkjaforseti við komuna til Vínar í gærkvöldi. MYND/AP

Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í dag að hann vilji loka fangelsinu í Guantanamo og senda flesta fangana þar til síns heima. Nokkrir verði þó leiddir fyrir rétt í Bandaríkjunum, þeir fangar sem forsetinn skilgreinir sem "kaldrifjaða morðingja". Bush lét þessi orð falla á fundi sínum með leiðtogum Evrópusambandsríkjanna í Vín í dag.

Leiðtogarnir ræddu einnig viðskipti, orkubúskap jarðarinnar, loftslagsbreytingar, Írak og kjarnorkudeiluna í Íran.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×