Ber ekki saman um aftöku Saddams 29. desember 2006 12:30
Embættismönnum ber ekki saman um hvenær Saddam Hussein verður tekinn af lífi. Íraska varnarmálaráðuneytið segir að dómnum verði ekki framfylgt næsta mánuðinn en af orðum íraska forsætisráðherrans, gæti það jafnvel orðið á morgun. Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, sagði í dag að aftöku Saddams Hússeins yrði ekki frestað, né yrði dómurinn endurskoðaður. Þetta eru fyrstu orð hans um málið eftir að kröfu Saddams um áfrýjun var hafnað. Þetta kemur heim og saman við það sem bandaríska forsetaembættið sagði í gærkvöldi: að Saddam yrði líklega líflátinn á næstu dögum, jafnvel á morgun. Háttsettur embættismaður innan íraska varnarmálaráðuneytisins sagði hins vegar í morgun að Saddam yrði ekki líflátinn fyrr en eftir mánuð, í fyrsta lagi. Og það er ráðuneytið sem ræður því hvenær dómnum verður framfylgt, í það minnsta að nafninu til. Lögfræðingur Saddams sagði í morgun að hann hefði kvatt bræður sína í gær á þann hátt að hann búist ekki við að sjá þá á ný. Þá sagði hann einnig að Saddam hefði verið færður í gæslu Íraka, eftir að hafa verið í haldi Bandaríkjamanna síðan hann var handtekinn. Þessu neitar varnarmálaráðuneytið einnig.
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira