Milljónir í pílagrímsgöngu 29. desember 2006 11:46
Áætlað er að um þrjár milljónir múslima séu komnar til Mekka í Sádi-Arabíu í árlega pílagrímsathöfn. Miklar öryggisráðstafanir eru á svæðinu þar sem á fjórða hundrað manna tróðust undir við síðustu athöfn. Margir hefja pílagrímsferðina með tár í augum, svo mikil hughrif hefur hún á trúaða múslima, enda er þetta ein mikilvægasta trúarathöfn í íslam og ein af fimm meginstoðum trúarbragðanna. Dagurinn í dag hófst á því að tugþúsundir manna fóru til bæna og íhugunar að Arafat-fjalli, sem er rétt utan við Mekka, þar sem Múhameð spámaður er sagður hafa flutt sína síðustu predikun árið 632. Þar á eftir liggur leiðin til út í eyðimörkina í Mina, þar sem steinum er grýtt í átt að ákveðnum stöðum, en athöfnin er táknmynd fyrir að grýta djöfulinn. Miklar öryggisráðstafanir eru fyrir þessa athöfn þar sem 360 manns tróðust undir og létust í janúar síðastliðnum. Þetta er sagt hafa byrjað með því að nokkrir pílagrímar hnutu um farangur sem lá fyrir fótum þeirra. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segjast taka það hlutverk mjög alvarlega og hafa eytt meira en 70 milljörðum íslenskra króna til að tryggja öryggið á pílagrímsstaðnum Mina. Aðalatriðið í pílagrímsferðinni Hajj er hins vegar að ganga sjö sinnum rangsælis í kringum Kaaba-bygginguna sem er í miðju Haram-moskunnar í Mekka. Kaaba er helgasta vé múslima og er það sem allir múslimar miða við þegar þeir leggjast á bæn og snúa í átt að Mekka.
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira