Risatjald reist í heimalandi Borats 10. desember 2006 11:51 Tjaldið mun þekja svæði á við 10 fótboltavelli MYND/Architects' Journal
Forseti Kazakstan, Nursultan Nazarbayev, slær ekki slöku við í uppbyggingu hinnar nýju höfuðborgar landsins á steppunum norðan Baikalvatns. Hann hefur öðru sinni fengið hinn heimsfræga arkitekt Norman Foster, lávarð, til að hanna byggingu í borginni, í þetta skiptið risavaxið tjald, sem verður 150 m hæð, og þekur svæði á við 10 knattspyrnuvelli. Lord Foster teiknaði fyrir nokkru síðan risastóran glerpýramída í borginni, sem hýsir meðal annars Kazakstan-óperuna í kjallaranum. Undir nýja tjaldinu er gert ráð fyrir miðborg með torgum, steinlögðum strætum, skurðum með rennandi vatni, verslanamiðstöðvum og golfvöllum. Í tjaldinu verður sumar allt árið, en á steppunum verður jafnan 30 gráðu frost á vetrum. Fréttavefur BBC hefur eftir Fettah Tamince, sem fer fyrir Sembol, tyrkneska fyrirtækinu sem reisir tjaldið, að ekkert þessu líkt hafi risið áður og verkfræðilega verði þetta erfitt, en reiknar samt með að það takist að ljúka verkinu á einu ári. Bygging höfuðborgarinnar hófst 1997 og hefur kostað að minnsta kosti 15 milljarða bandaríkjadollara (1.050 milljarða ISK - jafngildi um 10 Kárahnjúkavirkjana) sumir segja miklu meira. Rúmlega 15 milljónir manna búa í Kazakstan, sem er fyrrum Sovétlýðveldi, ríkt af olíu- og gaslindum. Landið hefur verið talsvert í fréttum að undanförnu vegna kvikmyndarinnar Borat eftir breska háðfuglinn Sacha Baron Cohen. Fréttaskýringaþátturinn Kompás fjallar að hluta til um Kazakstan í kvöld.
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Erlent Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Erlent Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Erlent Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Erlent Netmiðlar myndu flestir liggja niðri á Íslandi Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Innlent Fleiri fréttir Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Sjá meira