Úrbætur í 79 liðum 6. desember 2006 18:56
Ráðgjafarnefnd Bandaríkjaforseta segir að ástandið í Írak sé grafalvarlegt og fari versnandi. Í skýrslu nefndarinnar segir að stefna forsetans sé ekki að skila árangri og lagt er til að umtalsverður hluti herliðsins í landinu verði kallaður heim á næstu misserum. Óhætt er að segja að skýrslunnar hafi verið beðið með nokkurri eftirvængingu enda hefur ástandið í Írak farið stigversnandi með hverjum mánuðinum og úrbóta því þörf. Starfshópurinn, sem skipaður er fulltrúum úr báðum stóru flokkunum, hefur verið að störfum síðan í apríl og rætt á þeim tíma við um 170 manns um hvað betur megi fara í stríðsrekstrinum í Írak. Myndin sem þeir drógu upp í dag var hreint út sagt kolsvört. Lee Hamilton, varaformaður hópsins, sagði ástandið í Írak færi hríðversnandi og mannfall hefði aukist, bæði hjá bandarískum hermönnum og íröskum borgurum. Hann bætti því við að nú þegar hefði stríðið kostað bandaríska skattgreiðendur 27 þúsund milljarða króna og áður en yfir lyki gæti reikningurinn hljóðað upp á 68 þúsund milljarða. En starfshópurinn telur að enn séu nokkrir möguleikar í stöðunni og því leggur hún til 79 breytingar á stefnunni í Írak. Segja má að þrír þættir séu leiðarstefið í tillögunum. Í fyrsta lagi á að endurskilgreina verkefni Bandaríkjahers í Írak þannig að þær sjái frekar um að aðstoða íraskar hersveitir en að taka sjálfar þátt í bardögum. Þannig mætti fækka bandarískum hermönnum um allt að helming á næstu 18 mánuðum. Í öðru lagi verður að knýja írösku stjórnina til að herða sig í að sætta ólíka þjóðfélagshópa landsins og í þriðja lagi þarf að koma til samstillt átak ríkisstjórna á svæðinu og setja ætti á fót sérstakan vettvang til þess arna. Í því sambandi væri framlag Sýrlendinga og Írana afar þýðingarmikið. George Bush Bandaríkjaforseti las skýrsluna yfir í dag og sagðist hann hafa tjáð fulltrúum starfshópsins að tillögur þeirra yrðu teknar mjög alvarlega.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira