Erlent

Snjóbylur veldur usla í Bandaríkjunum

Starfsmenn flugfélagsins American Airlines reyna að koma í veg fyrir ísingu á flugvélum félagsins á Dallas-flugvelli í gær.
Starfsmenn flugfélagsins American Airlines reyna að koma í veg fyrir ísingu á flugvélum félagsins á Dallas-flugvelli í gær. MYND/AP

Fyrsti snjóbylur vetrarins gekk yfir miðvesturríki Bandaríkjanna í gær með tilheyrandi töfum á umferð bæði í lofti og á landi. Þá var einnig gripið til þess að loka skólum vegna ofankomu og frosts sem náði allt frá Texas og Oklahoma til Michigan. Flugi 250 véla frá Dallas-flugvelli var frestað í gær vegna veðursins og yfir 700 flugferðum á O´Hare-flugvelli í Chicago var sömuleiðis frestað. Þá voru um 270 saltbílar ræstir út í Chicago enda víða flughált eins og þessar myndir bera með sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×