Erlent

Segir ríkisstjórn Líbanons ekki segja af sér

Líbanskur hermaður stendur vörð við stjórnarráðið í Beirút en búist er við fjölmennum mótmælum á vegum Hizbollah þar í dag.
Líbanskur hermaður stendur vörð við stjórnarráðið í Beirút en búist er við fjölmennum mótmælum á vegum Hizbollah þar í dag. MYND/AP

Fuad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, segir að ríkisstjórn hans muni ekki segja af sér þrátt fyrir boðuð fjöldamótmæli Hizbollah-samtakanna í dag.

Siniora kom fram í líbönsku sjónvarpi í gær og sagði lýðræði í landinu í hættu vegna aðgerða Hizbollah, en Hassan Nasrallah, leiðtogi Hamas, hafði fyrr um daginn hvatt líbönsku þjóðina til fara út á götur í dag og krefjast afsagnar ríkisstjórnarinnar en Hamas-liðar fara fram á aukin völd í landinu.

Spennan í landinu virðist síður en svo að dvína en hún óx töluvert í síðustu viku þegar iðnaðarráðherrann Pierre Gemayel, leiðtogi falangista í landinu, var ráðinn af dögum í Beirút. Hafa sýrlensk stjórnvöld verið sökuð um að standa á bak við það en Hizbolla-samtökin þykja einmitt höll undir stjórnvöld í Sýrlandi, en Siniora og bandamenn hans njóta hins vegar stuðnings Vesturlanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×