Ísraelar notuðu jarðsprengjur í Líbanon í sumar 26. nóvember 2006 15:31 Bosníski sprengjusérfræðingurinn Damir Paradzik missti neðan af báðum fótum á föstudaginn. MYND/AP
Nú er talið fullvíst að Ísraelskir hermenn hafi komið fyrir jarðsprengjum þegar þeir voru í Líbanon í sumar en þessu hafa Ísraelar staðfastlega neitað. Tveir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna stigu á jarðsprengjur á föstudaginn á svæði sem hafði verið hreinsað af jarðsprengjum eftir að Ísraelsher yfirgaf Líbanon árið 2000. Sprengjuleitarmennirnir voru sendir á staðinn eftir að geitahirðir tilkynnti að ein af geitunum hans hefði stigið á klasasprengju, en þær eru dreifðar um allt Suður-Líbanon. Sprengjusérfræðingarnir höfðu augun hjá sér og gættu þess að stíga ekki á klasasprengjur en vöruðu sig ekki á jarðsprengjum sem lágu grafnar í jörðu, þar sem slíkt átti ekki að finnast þarna lengur. Báðir misstu fæturna neðan við hnén. Þetta eru fyrstu sönnunargögnin sem styðja við ásakanir á hendur Ísraelum að þeir hafi skilið eftir sig jarðsprengjur í sumar. Í gær var annað lið sprengjusérfræðinga sent á staðinn og þá missti einn breskur sprengjusérfræðingur neðan af fæti þegar hann steig á jarðsprengju. Yfirmaður sprengjuhreinsunar Sameinuðu þjóðanna í Suður-Líbanon sagði að Ísraelum bæri siðferðisleg skylda til að láta vita af því hvar þeir skyldu eftir sprengjur, hverrar tegundar og í hvaða magni þær væru. Þetta hefðu þeir hins vegar ekki gert eftir sumarið, þó að sprengjusérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafi þrábeðið um það.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira