Erlent

Olmert vonast til varanlegs friðar

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels.
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. MYND/AP

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, vonast til þess að vopnahlé sem samþykkt var í nótt geti orðið til þess að "alvöru samningaviðræður" geti hafist á milli grannþjóðanna. Hann segir Ísraela muni sýna þolinmæði þó að palestínskir skæruliðar brjóti vopnahléð á næstu dögum.

"Ég vona innilega að þeir (Palestínumenn) muni sýna ábyrgð og manngæsku. Þetta gæti verið upphafið að alvarlegum, raunverulegum, opnum og beinum viðræðum milli Ísraels og palestínskra yfirvalda... sem leitt gætu til varanlegs samkomulags milli Ísraela og Palestínumanna," sagði Olmert í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×