Erlent

Vínbirgðareisurnar Evrópubúar geta haldið áfram

Áfengisbirgðirnar í ríkinu. Íslendingar eiga ekki jafnhægt um vik og Evrópusambandsbúar að fara í sérstakar vínbirgðareisur til ódýrari landa.
Áfengisbirgðirnar í ríkinu. Íslendingar eiga ekki jafnhægt um vik og Evrópusambandsbúar að fara í sérstakar vínbirgðareisur til ódýrari landa. MYND/Hörður Sveinsson

Evrópudómstóllinn dæmdi í morgun að fólk sem pantar áfengi í póstlista frá öðru aðildarlandi Evrópusambandsins og fær það sent heim að dyrum, skal greiða af því skatt í því landi sem pósturinn skilar pöntuninni. Ef fólkið fer hins vegar sjálft og sækir sér áfengi og flytur heim sjálft, þá greiðir það aðeins skatt í landinu þar sem áfengið er keypt.

Evrópusambandsbúar geta því óhræddir áfram farið í vínbirgðareisur til ódýrari landa, eins og tíðkast víða um álfuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×