Erlent

Gíslar pyntaðir og drepnir í Bagdad

Mannræningjar sem rændu tugum manna úr menntamálaráðuneytinu í Bagdad á þriðjudag pyntuðu og myrtu nokkra af gíslum sínum. "Þeir sem voru drepnir voru starfsmenn ráðuneytisins og öryggisverðir," sagði Abd Dhiab, menntamálaráðherra í morgun. 70 gíslar hafa sloppið úr haldi mannræningjanna en ráðherrann sagði að um 150 manns hafi verið rænt.

"Samkvæmt framburði þeirra sem hafa sloppið, voru nokkrir pyntaðir til dauða," sagði Dhiab, án þess að vilja gefa nánar upp hversu margir hefðu verið drepnir.

Flest bendir til að sjíamúslimar hafi rænt fólkinu úr menntamálaráðuneytinu. Dhiab, sem er einn fulltrúa stjórnmálaflokks súnnímúslima í ríkisstjórn þar sem sjíamúslimar eru í forystu, staðfesti orð sín og fyrirætlun að sniðganga ríkisstjórnina þar til öllum gíslunum hafi verið sleppt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×