Erlent

10 ríki selja vopn til Sómalíu samkvæmt skýrslu SÞ

MYND/AP

Nýbirt skýrsla Sameinuðu þjóðanna segir að 10 tiltölulega valdamikil ríki geri átök í Sómalíu möguleg með því að selja þangað vopn. Þeirra á meðal eru Sýrland og Íran, sem sögð eru selja vopn til íslamskra skæruliðahópa sem stjórna stórum hluta Sómalíu. Öll neita löndin ásökununum.

Eþíópía og Erítrea eru sögð þau lönd sem beri mesta ábyrgð utanaðkomandi aðila. Eþíópíumenn eru sagðir selja uppreisnarmönnum vopn en Erítreumenn styðji við bakið á íslömskum uppreisnarsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×