Umsátrinu lokið 7. nóvember 2006 19:30
Ísraelski herinn hefur dregið lið sitt til baka frá bænum Beit Hanoun á Gazaströndinni eftir sex daga langt umsátur. Fimmtíu Palestínumenn og einn Ísraeli liggja í valnum eftir umsátrið. Ísraelar skilja eftir sig sviðna jörð í Beit Hanoun, þar stendur varla steinn yfir steini eftir linnulausar árásir undanfarinna daga. Ísraelsk stjórnvöld segja aðgerðirnar hafa verið nauðsynlegar til að uppræta eldflaugaárásir palestínskra skæruliða yfir landamærin en eins og fyrri daginn bitnaði skothríðin á þeim sem síst skyldi. Af þeim fimmtíu palestínumönnum sem týndu lífi í árásunum voru sextán saklausir borgarar. Margir þeirra sem lögðu á flótta komu að heimilum sínum í algerri rúst. Á einni af moskum bæjarins stendur einungis eftir bænaturninn en þar leituðu nokkrir skæruliðanna skjóls. Þegar konur úr bænum reyndu að koma þeim til aðstoðar létu ísraelskir hermenn rigna yfir þær kúlum sínum. Jarðarfarir fjölmargra fórnarlamba umsátursins voru haldnar í dag og óhætt er að segja að þar hafi geðshræringin verið mikil. Á meðan öllu þessu stendur freista leiðtogar Hamas og Fatah þess að mynda nýja þjóðstjórn. Líkur eru á að hana muni skipa ópólitískir embættismenn í stað Hamas-liða. Vonast er til þar með ljúki einangrun palestínsku heimastjórnarinnar og fjárstuðningur frá Vesturlöndum hefjist á ný.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira