Óvíst hvort réttarhöldum yfir Saddam lýkur fyrir hengingu 7. nóvember 2006 13:00 Saddam Hussein í réttarsal. MYND/AP
Saddam Hussein mætti fyrir dómara í morgun, tveimur dögum eftir að dauðadómur var kveðinn upp yfir honum. Að þessu sinni snerust réttarhöldin um fjöldamorð hans á Kúrdum en óvíst er hvort þeim verður lokið áður en dauðadómnum verður fullnægt. Blekið er varla þornað á dauðadómnum yfir Saddam Hussein sem hann fékk vegna morða á 148 sjíum árið 1982 þegar hann er kominn aftur í réttarsalinn því í morgun hélt málflutningur áfram í réttarhöldum vegna Anfal-herferðarinnar svonefndu. Talið er að í það minnsta 180.000 Kúrdar hafi látið lífið í þessum hefndaraðgerðum íraskra stjórnvalda sem upphófust í lok stríðsins við Íran á ofanverðum áttunda áratugnum. Dauðadómnum yfir Saddam verður sjálfkrafa áfrýjað og er búist við að niðurstaða áfrýjunardómstóls liggi fyrir snemma á næsta ári. Enn er hins vegar óljóst hvort hægt verði að ljúka Anfal-málinu ef dauðadómurinn verður staðfestur því honum verður að fullnægja innan eins mánaðar. Kúrdar eru skiljanlega þeirrar skoðunar að öllum kurlum verði að koma þar til grafar en margir embættismenn, þar á meðal al-Maliki, forsætisráðherra, vill láta hengja Saddam án tafar. Þá lýsti talsmaður klerkastjórnarinnar í Íran ánægju sinni í morgun með dóminn og kvaðst vona að Írakar yrðu ekki beittir þrýstingi um að framfylgja honum ekki. Ólga vegna dauðadómsins hefur verið mun minni í landinu en búist var við. Útgöngubanni var aflétt í höfuðborginni í morgun og hefur allt verið þar með kyrrum kjörum í dag.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Sjá meira