Erlent

83 lík fundin á einum og hálfum sólarhring

MYND/AP

Lögreglan í Bagdad segist hafa fundið 83 lík hér og þar um borgina á síðastliðnum einum og hálfum sólarhring. Sum bera þess merki að fólk hafi verið pyntað áður en það var myrt. 7 bandarískir hermenn til viðbótar létust í Írak og að sögn bandaríska hersins féllu 13 uppreisnarmenn. Flestir eru karlmenn og fundust bundnir á höndum og fótum.

Spennan eyskt í borginni þar sem dómur verður kveðinn upp yfir Saddam Hussein í fyrsta hluta réttarhaldanna yfir honum. Lögregla getur sér þess til að flestir hafi orðið fyrir barðinu á ofbeldi milli trúarhópa en einhverjir gætu hafa verið myrtir af þjófum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×