Erlent

Flóttamönnum fjölgar í Damaskus

Flóttafólkið hefst meðal annars við í skólum í Damaskus.
Flóttafólkið hefst meðal annars við í skólum í Damaskus. Mynd/AP

Fjöldi flóttamanna sem streymir til Sýrlands frá Líbanon heldur áfram að aukast. Flóttafólkið dvelur í búðum sem settar hafa verið upp í kringum höfuðborgina, Damaskus. Ráðmenn í Ísrael sögðu í gær að ríkisstjórn Ísraels vildi að alþjóðlegt friðargæslulið hefði eftirlit með því að skæruliðar Hizbollah verði fluttir frá suðurhluta Líbanon. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundar í dag með ráðamönnum í Ísrael. Engin teikn eru á lofti um að átökum á svæðinu ljúki í bráð. Jan Egeland, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í gær Ísraela brjóta alþjóðalög með árásum á íbúðarhverfi í Líbanon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×