Fótboltinn sameinar 17. júní 2006 20:00 Argentínumenn eru gott dæmi um að ekki þarf að fara saman styrkur á stjórnmálasviðinu og fótboltavellinum. MYND/AP
Til átaka kom á milli palestínskra mótmælenda og ísraelskra hermanna í bænum Bílín á Vesturbakkanum í gær vegna múrsins sem verið er að reisa á landamærunum. Allt féll hins vegar í dúnalogn þegar deilendur töldu sig skyndilega hafa mikilvægari hnöppum að hneppa. ðskilnaðarmúr Ísraela er mikill þyrnir í augum íbúa Vesturbakkans og því eru mótmæli við byggingu hans engin nýlunda. Ísraelar segja hann nauðsynlegan til að halda palestínskum hryðjuverkamönnum frá ísraelskum borgum en Palestínumenn benda á að múrinn sé reistur í trássi við alþjóðalög og slíti jafnvel þorp og bæi í sundur. Á dögunum lýsti Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels því yfir að verkinu yrði lokið í lok þessa árs og múrinn myndi upp frá því marka landamæri Palestínu og Ísraels. Í gær var enn einu sinni efnt til mótmæla við múrinn og kom þá til átaka á milli mótmælenda og ísraelskra hermanna. Nú bar hins vegar svo við að hlé var gert á átökunum þar sem mikilvægari málum þurfti að sinna - heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu. Allir virtust skemmta sér hið besta yfir leiknum og gleyma um stund þeim áhyggjum sem hvíldu á þeim fyrr um daginn. Þótt oft sé hart tekist á á fótboltavellinum eru það einmitt viðburðir eins og HM í knattspyrnu sem færa lönd og lýði nær saman. Tímaritið Economist víkur einmitt að þessu í nýlegu hefti sínu. Þar er heimsmeistarakeppnin borin saman við Ólympíuleikana sem oft hafa verið notaðir sem áróðurstæki voldugustu ríkja heims, t.d. Þýskalands nasimans og risa kalda stríðsins. Sterkustu liðin á HM eru hins vegar ekki endilega þau áhrifamestu á vettvangi alþjóðastjórnmálanna, Brasilía og Argentína eru góð dæmi um það.
Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Sjá meira