Íranar tilbúnir til viðræðna 4. júní 2006 13:00
Íranar eru tilbúnir til viðræðna um kjarnorkuáætlanir sínar en segja Bandaríkjamenn ekki setja skilyrðin. Forseti landsins segir Írana aldrei munu gefa upp rétt sinn til að auðga úran. Forsetinn sagði þó í gær að Íranar myndu athuga og íhuga vel þau tilboð sem kæmu frá fulltrúm þeirra fimm ríkja sem eiga fast sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Unnið er nú hörðum höndum við að útbúa tilboð sem gera á Írönum á næstu dögum og er vonast til að það verði nógu freistandi til að þeir leggi áætlanir sínar um að auðga úran á hilluna. Menn eru þó síður en svo sannfærðir um að svo verði, þar sem forsetinn hefur sagt útilokað að Íranar gefi upp rétt sinn til að auðga úran sem sé réttur allra þjóða, ekki bara þeirra sem Bandaríkjamönnum líkar við. Bandaríkjamenn eru sannfærðir um að Íranar ætli sér að framleiða kjarnorkuvopn en því hafa Íranar alltaf neitað. Íranar hafa þó aukið framleiðslu sína á eldflaugum sem borið geta kjarnaodda og hefur það ekki minnkað grunsemdir Bandaríkjamanna sem segja Írana geta framleitt kjarnorkuvopn á næstu fjórum árum, verði þeir ekki stöðvaðir. Æðsti leiðtogi Írans, Ayatollah Ali Khamenei, sagði í dag að ef Bandaríkin léku rangan leik, gæti það haft áhrif á olíuviðskipti landsins en Bandaríkjamenn hafa ekki útilokað árásir á landið.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira