Eldvirkni í Merapi meiri eftir jarðskjálftann 29. maí 2006 12:30 MYND/AP
Yfirmaður hjálparstarfs hjá Sameinuðu þjóðunum segir björgunarsveitir og lækna í kapphlaupi við tímann að bjarga þeim sem slösuðust í jarðskjálfta sem skall á indónesísku eyjunni Jövu um helgina og varð minnst 5.000 manns að bana. Eldvirkni í eldfjallinu Merapi á eyjunni hefur aukist. Mörg þúsund íbúar á Jövu leituðu sér lækninga og létu binda um sár sín á sjúkrahúsum víðsvegar um eyjuna í morgun. Eyjaskeggjar eru enn í losti eftir að jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter reið yfir og varð hátt í 5.000 manns að bana. Minnst 20 þúsund manns slösuðust og 200 þúsund manns hafa misst heimili sín. Læknar eiga nú fullt í fangi með að hlúa að slösuðum sem liggja á plastdúkum og strámottum fyrir utan full sjúkrahúsin. Margir íbúar hafa þó gefist upp á að hýrast fyrir utan sjúkrahúsin eða í lekum sjúkratjöldum og hafa sumir snúið aftur til síns heima, þó húsin séu rústir einar, og leitað þar skjóls. Jan Engeland, stjórnandi hjálparstarfs Sameinuðu þjóðanna á hamfarasvæðum, segir lækna nú í kapphlaupi við tímann að bjarga þeim sem liggja sárir eftir hamfarirnar. Því sé það mikið verk sem bíði björgunarmanna sem þurfi að koma hjálpargögnum til nauðstaddra á þeim svæðum sem verst urðu úti. Fulltrúar hjálparsamtaka á vegum Sameinuðu þjóðanna koma saman til fundar í Genf í Sviss í dag til að ræða næstu skref. Einhver samtakanna hafa þegar sent hjálpargögn en fulltrúar þeirra segja þörf á margfalt meiru. Asíulönd hafa heitið milljónum bandaríkjadala í stuðning, mörgum tonnum af hjálpargögnum og mörg hundruð læknum og björgunarfólki. Stjórnvöld á Indónesíu hafa heitið rúmlega hundrað milljónum dala til endurbyggingarstarfs. Björgunarsveitir frá fjölmörgum löndum eru þegar komnar á þau svæði sem verst urðu úti. Talið er að fjölmargir liggi en grafnir í rústum húsa en engar líkur taldar á að nokkur finnist á lífi. Eldvirkni í eldfjallinu Merapi á Jövu er nú sögð þrefalt meiri en fyrir jarðskjálftann. Mörg þúsund íbúar hafa þegar verið fluttir frá nærliggjandi svæðum. Sérfræðingar segja enn hættu á miklu eldgosi og því er gæsla á svæðinu margföld á við það sem var fyrir skjálftann.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Sjá meira