Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir gíslatöku í Rússlandi 26. maí 2006 11:51 Nur Pashi Kulayev hlýddi alvörugefinn á dómsuppskurðinn inni í glerbúri. MYND/AP
Téténskur aðskilnaðarsinni, sem ásamt öðrum, hélt 1.000 börnum í gíslingu í skóla í Beslan í Rússlandi árið 2004, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi. 330 manns létu lífið í gíslatökunni. Nur Pashi Kulayev, er sá eini af 32 téténskum aðskilnaðarsinnum sem héldu fólkinu föngnu, sem enn er á lífi. Dómarinn sagði að helst hefði átt að taka hann af lífi fyrir verknaðinn, en þar sem dauðarefsingar væru ólöglegar í Rússlandi, væri hann aðeins dæmdur í lífstíðarfangelsi. Úrskurðurinn er hápunktur árslangra tilfinningaríkra réttarhalda. Svartklæddar mæður fórnarlamba biðu fyrir utan dómshúsið með myndir af fórnarlömbum og áróðursborða þar sem stjórnvöldum var kennt um ófarirnar og að þeim yrði aldrei fyrirgefið. Þegar Kulayev var leiddur í burtu reyndu sumar þeirra að ráðast á hann, aðrar grétu og börðu á glerklefann. Þrjú hundruð og þrjátíu manns létu lífið í gíslingunni, langflest af hinum látnu voru börn. Skotið var á fólkið, auk þess sem sprengjur voru sprengdar. Margir hafa orðið til að gagnrýna það að svo margir þungvopnaðir menn hafi komist fram hjá öryggiseftirliti og náð svo mörgum á sitt vald. Margir þorpsbúa telja ekki öll kurl komin til grafar, og segja réttarhöldin yfir Kulayev hafa verið blásin upp til að leyna mistökum stjórnvalda.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Sjá meira