Erlent

Íranar halda fast við kjarnorkuáætlun sína

MYND/AP
Íranar ætla að halda sig fast við kjarnorkuáætlun sína. Þeir segja kjarnorkurannsóknirnar eiga fullan rétt á sér og um þær verði ekki samið. Gholam Hoosein Elham, talsmaður Írana, ítrekaði á fundi í morgun að Íranar teldu það sjálfsagðan rétt sinn að halda kjarnorkurannsóknum sínum áfram og að auðga úran. Hann sagði að ekki yrði um neitt samstarf að ræða í þessum málum við önnur ríki eða samkomulag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×