Íbúar við Merapi snúa aftur þrátt fyrir ótta um aukna gosvirkni 14. maí 2006 12:15
Tugir íbúa sneru aftur til heimkynna sinna við eldfjallið Merapi í Indónesíu í morgun, þrátt fyrir ótta um að eldgosið í fjallinu eigi eftir að færast verulega í aukana. Ljósasýningarnar í Merapi verða stöðugt bjartari eftir því sem gosið færist í aukana. Vísindamenn segja að fjallið sé eins og flaska sem verið er að taka korkinn út; það er byrjað að frussa upp úr en sjálft gosið þegar tappinn skýst upp er eftir. Glóandi hraunbjörgin sem velta niður hlíðarnar ættu að duga til að halda fólki í burtu en margir þeirra 22 þúsund manna sem búa innan við átta kílómetra frá fjallinu vilja ekki yfirgefa skepnur sínar og akra. Tugir manna, sem voru komnir burt, reyndu í morgun að komast aftur til síns heima. Þetta eru bláfátækir bændur og aleiga þeirra er í kofum, ræktarlandi og búfénaði. Einn gamall maður sem fréttamenn hittu sagði einfaldlega:„Ég ber ábyrgð á því að mjólka kýrnar og slá grasið. Það er ekki hægt að skorast undan sinni ábyrgð." Fjallið hefur nú bókstaflega rifnað og komin er löng sprunga niður úr keilunni. Grár reykur stígur upp úr sprungunni. Síðast þegar Merapi gaus - árið 1994 - létust sextíu manns af völdum eldgass sem gaus út úr fjallinu. Árið 1930 létust 1.300 manns í eldgosi í Merapi. Samkvæmt þjóðtrúnni er konungdæmi stjórnað úr keilunni á Merapi en það konungdæmi er ekki þessa heims. Það eru hins vegar kýrnar, pálmatrén og akrarnir og því leggja fátækir bændur kapp á að sinna þeim þrátt fyrir augljósa hættuna.
Erlent Fréttir Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Hífðu lystisnekkjuna sem sökk upp úr sjónum við Sikiley Sjá meira