Bandaríkjamenn fjölga herstöðvum í A-Evrópu 28. apríl 2006 13:00 Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Sergei Stanishev, undirrita samkomulag um að Bandaríkjamenn opni herstöð í Búlgaríu.
Á sama tíma og Bandaríkjamenn draga úr varnarviðbúnaði sínum í Vestur-Evrópu fjölga þeir herstöðvum austar í álfunni. Bandaríkin og Búlgaría undirrituðu í daCondoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur gert víðreist síðustu daga til þess að efla og styrkja sambandið við gamla og nýja bandamenn. Hún er nú í Búlgaríu þar sem hún undirritaði samning um að sett yrði upp bandarísk herstöð í landinu.Þar eiga að vera 2500 bandarískir hermenn að staðaldri, en þannig búið um hnúta að hægt verði að fjölga þeim stórlega á skömmum tíma. Búlgaría er eitt af nýju NATO-ríkjunum og tekur því fagnandi að fá bandaríska herstöð í landið. Rice var sömuleiðis ánægð með herstöðvasamninginn, sem gerður var til tíu ára.„Þetta er samningur sem vissulega mun auka samvinnu okkar, að fá að deila búlgörskum æfingabúðum. Það eykur getu okkar til þess að vinna saman á hernaðarsviðinu. En samningurinn er meira en það. Þetta er í raun grundvallarsáttmáli í því breiða samstarfi sem Búlgaría og Bandaríkin hafa átt og eru að þróa með sér," sagði Rice.Þetta hljómar dálítið kunnuglega, ef við förum nokkra áratugi aftur í tímann, á Íslandi.Búlgaría er eitt af Balkanríkjunum og gekk í NATO árið 2004. Búlgarar vonast eftir að fá aðild að Evrópusambandinu á næsta ári. Íbúar í Búlgaríu eru tæpar átta milljónir. Gert er ráð fyrir að fyrstu bandarísku hermennirnir komi þangað í lok þessa árs, eða byrjun næsta. Ekki er þess getið í fréttum af þessum atburði hvort þangað verða sendar eins og fjórar F-15 orrustuþotur og nokkrar þyrlur.
Erlent Fréttir Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Innlent Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Innlent Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Erlent Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Innlent Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Hífðu lystisnekkjuna sem sökk upp úr sjónum við Sikiley Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Ísraelar héldu árásum sínum áfram í nótt „Gríðarstór“ árás á höfuðborgina Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Tíu Íslendingar í Íran og fjórir í Ísrael Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Bandaríkjamenn gera loftárásir á Írani Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Tugir látnir eftir þeir reyndu að sækja sér mat Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Sjá meira