Stjórnarsáttmáli í höfn 27. apríl 2006 19:15 Olmert og Peretz voru sáttir þegar stjórnarmynduninni var lokið. MYND/AP
Ný ríkisstjórn í Ísrael er handan við hornið eftir að Kadima-flokkurinn og Verkamannaflokkurinn náðu samkomulagi um stjórnarsamstarf. Flokkarnir hafa ekki hreinan meirihluta og þurfa því að reiða sig á stuðning nokkurra smáflokka. Kadima-flokkurinn sem Ariel Sharon, þáverandi forsætisráðherra, stofnaði síðastliðið haust var sigurvegari ísraelsku þingkosninganna sem haldnar voru í lok síðasta mánaðar en Verkamannaflokkurinn fékk þá næst flest þingsæti. Nú hafa þessir flokkar náð samningum um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Allt bendir til að Ehud Olmert, leiðtogi Kadima og starfandi forsætisráðherra, haldi embætti sínu en Amir Peretz, leiðtogi Verkamannaflokksins, verður varnarmálaráðherra. Flokkarnir tveir hafa þó aðeins rúmlega þriðjung þingsæta og því verða þeir að reiða sig á stuðning nokkurra smáflokka eigi þeir að halda velli. Flokkur eldri borgara hefur þegar gengið til liðs við þá og fastlega er búist við að Shas og Lögmálsflokkurinn, sem strangtrúaðir gyðingar stýra, og hinn vinstrisinnaði Meretz-flokkur muni einnig setjast í stjórnina. Með svo tryggan meirihluta ætti stjórninni að takast að koma ýmsum af sínum umdeildari málum í gegnum þingið, svo sem lokun smærri landnemabyggða á Vesturbakkanum. Olmert lýsti því einmitt yfir í gær einhliða brottflutningi þaðan yrði haldið áfram svo varðveita mætti einingu Ísraels sem ríkis gyðinga.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Fleiri fréttir Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Sjá meira