Íranar svara af fullum krafti, verði ráðist á landið 27. apríl 2006 10:40
Íranar munu svara af fullum krafti, verði ráðist á landið. Þetta sagði æðsti klerkur landsins í gær. Utanríkisráðherra Bretlands, segir ekki koma til greina að ráðast á Írana vegna kjarnorkuáætlana þeirra en Bush Bandaríkjaforseti útilokar þó ekkert í þeim efnum. Ajatollah Ali Kameinei, æðsti leiðtogi Írans segir að hatur gegn Bandaríkjunum myndi aukast gríðarlega og að unnið yrði gegn þeim víðar í heiminum en þeir geta ímyndað sér, ráðist þeir á landið. Fulltrúar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fá á morgun skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar um viðbrögð Írana við kröfu ráðsins um að þeir hætti auðgun úrans. Hingað til hafa Íranar sagst staðráðnir í að nýta kjarnorku til að framleiða rafmagn fyrir iðnað og almenning. Það sé réttur hverrar þjóðar og vilji almennings í landinu. Á kjarnorkuvopnum hafi þeir þó engan áhuga en gagnrýna þó harðlega að ekkert sé sagt við því að Ísraelar fái að framleiða slík vopn. Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar vilja refsa ráðamönnum í Tehran fyrir að óhlýðnast en Rússar og Kínverjar eru andvígir refsingum þrátt fyrir að Íranar hafi margfaldað framleiðslu á eldflaugum sem borið geta kjarnaodda að undanförnu. Straw utanríkisráðherra Bretlands sagði í gær að aldrei hefði komið til greina að ráðast á landið en þó væri mjög mikilvægt að fá Írana til að hætta við áætlanir sínar og bað um frekari stuðning Kínverja í málinu. Bush Bandaríkjaforseti segir þó ekki koma til greina að Íranar fái að framleiða úran sem notað er til framleiðslu á kjarnorkuvopnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Sjá meira