Erlent

Árás við ræðismannsskrifstofu BNA í Pakistan

Frá vettvangi tilræðisins í morgun.
Frá vettvangi tilræðisins í morgun. MYND/AP

Tveir létust og átján slösuðust í sprengjuárás fyrir utan bandarísku ræðismanns skirfstofuna í Karachi í Pakistan í morgun. Tvær sprengjur sprungu með skömmu millibili á bílastæði Marriot-lúxushótelsins sem er við hliðina á ræðismannsskrifstofunni. Gluggar á skrifstofunni splundruðust og hótelið skemmdist einnig töluvert. George Bush Bandaríkjaforseti heimsækir Pakistan um helgina og talið er að árásin tengist komu hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×