Erlent

Vítisenglar illa þjakaðir af þunglyndi

MYND/Vísir

Það virðist leiða til þunglyndis að vera meðlimur í mótorhjóla- og glæpasamtökunum Vítisenglum. Að minnsta kosti benda nýjustu fréttir frá Stokkhólmi til þess því samkvæmt þeim eru sjötíu prósent meðlima samtakanna þar í borg þunglyndir. Yfirmaður innan lögreglunnar í Stokkhólmi segir í samtali við dagblaðið Dagens Nyheter að sami læknirinn hafi úrskurðað allan þennan fjölda þunglyndan og fá þeir vítisenglar bætur frá ríkinu fyrir vikið. Vítisenglasamtökin eiga langa sögu ofbeldisglæpa en undanfarin ár hafa alls kyns fjársvik einnig komist upp hjá mörgum meðlimum samtakanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×