Erlent

Breski herinn krafinn um skaðabætur

Íbúar í Basra mótmæla ofbeldisverkum bresku hermannanna.
Íbúar í Basra mótmæla ofbeldisverkum bresku hermannanna. MYND/AP

Tveir þeirra ungu Íraka, sem breskir hermenn gengu í skrokk á í Basra fyrir tveimur árum, ætla að lögsækja breska herinn og krefjast skaðabóta.

Boðað var til blaðamannafundar í dag þar sem unglingarnir sögðust hafa verið að mótmæla atvinnuleysi í landinu ásamt tvöhundruð öðrum þegar ráðist var á þá.

Bresku hermennirnir hafi skotið gúmmíkúlum á mótmælendur, haldið fjölmörgum í nokkrar klukkustundir og síðan barið suma þeirra. Ekki er fullvíst að þessir menn séu á myndunum af ofbeldi breskra hermanna, sem birtar voru um síðustu helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×